Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

11. maí, 2026

Sorpmál til umræðu í 10. bekk

Árni Magnússon, verkefnisstjóri úrgangsmála hjá Sorpstöð Suðurlands var gestur í í morgun í tíma hjá 10. bekk í upplýsingatækni. Árni fór yfir starf sitt og sagði frá stöðunni í úrgangsmálum á Suðurlandi, sem er víðast hvar góð. Íbúar eru heilt yfir duglegir að flokka og það hefur orðið mikil vakning fyrir flokkun síðustu ár. Í máli hans kom m.a. fram að sorpmálin á Suðurlandi kosta sveitarfélögin um tvo milljarða á ári, sem er ansi stór upphæð. Nemendur voru duglegir að spyrja Árna og fengu öll góð svör við spurningum sínum, enda mikil ánægja með heimsóknina.

Sorpstöð Suðurlands sér um sorpmál fyrir sveitarfélög á Suðurlandi. Hún er byggðasamlag sveitarfélaga og markmið hennar er meðal annars að:

  • sjá um móttöku og förgun úrgangs
  • stuðla að flokkun og endurvinnslu
  • minnka magn sorps sem fer til urðunar eða brennslu
  • tryggja að sorphirða uppfylli lög og umhverfiskröfur
  • þróa hagkvæmari og umhverfisvænni úrgangslausnir á Suðurlandi

Árni blessaði yfir nemendum og gerði það mjög vel.

Nemendur höfðu mikinn áhuga á heimsókn Árna og gáfu honum góð ráð þegar flokkun á sorpi er annars vegar.

Sorpmál er mikilvægur málaflokkur á Suðurlandi

Nemendur með Árna, sem er verkefnisstjóri hjá Sorpstöð Suðurlands.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is