Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

21. maí, 2026

Frábær heimsókn forsetahjónanna

Frú Halla Tómasdóttir, forseta Íslands og eiginmaður hennar, Björn Skúlason heimsóttu skólann í dag í tilefni af 30 ára afmælis leikskólans. Þau byrjuð með leikskólabörnunum en  þau sungu fyrir þau nokkur lög og spurðu forsetann margra spurninga. Eftir það var farið út og nokkrar hindberjaplöntur gróðursettar. Því næst fengu forsetahjónin kynningu á grunnskólanum og heimsóttu nokkra bekki og leyfðu nemendum að spyrja þau spurninga. Í hádeginu var svo boðið upp á lambasteik með öllu tilheyrandi en áður en það sungu nemendur skólans uppi á sviði lag Páls Óskars, „Geta ekki allir verið gordjöss”, undir stjórn Hólmfríðar Samúelsdóttur og Einar Þór Guðmundsson spilaði á píanóið. Forsetahjónin voru mjög ánægð með heimsóknin og þökkuðu mikið vel fyrir sig áður en þau fóru. Hér má sjá nokkrar myndir úr heimsókninni.

Hluti af nemendum skólans og stjórnendum með forsetahjónunum.

Frú Halla talaði vel og lengi við leikskólabörnin en skólinn fagnar nú 30 ára afmæli.

Jón Valgeirsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra og Helga G. Lárusdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi hittu forsetahjónin.

Yngstu krakkarnir fengu hópknús frá Höllu fyrir vel heppnaða heimsókn.

Frú Halla fór inn í kennslustofur og spjallaði við nemendur.

Boðið var upp á lambasteik með öllu tilheyrandi í hádegismatnum, sem forseta hjónin kunnu vel að meta.

Nemendur skólans fóru af kostum þegar þau sungu „Geta ekki allir verið gordjöss” fyrir forsetahjónin.

Nemendaráð skólans gekk með Höllu og Birni um skólann og kynntu hann.

Nemendaráð og stjórnendur skólans voru mjög ánægð með heimsókn forsetahjónanna.

Vel gekk að gróðursetja með leikskólakrökkunum.

Forsetahjónin við gróðursetningu með börnum úr leikskólanum.

Vel var tekið á móti forsetahjónunum í dag en hér eru þau með leikskólastjóranum og aðstoðarleikskólastjóranum.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is