Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

26. maí, 2026

Uppbrot á skólastarfinu síðustu kennsluvikuna

Nú er síðasta skólavika vorannarinnar runninn upp og því er skólastarfið brotið upp með allskonar verkefnum og skemmtun í leiðinni. Nemendur skiptast á ýmsar stöðvar þar sem leyst eru fjölbreytt verkefni. Einn hópur fór til dæmis í ruslatýnslu á lóð skólans og næsta nágrenni á meðan annar grillaði sér brauð og fór í snú snú. Það er verið að keppa í sundi svo eitthvað sé nefnt. Hér má sjá nokkrar ljósmyndir. Skólaslit verða svo föstudaginn 29. maí klukkan 10:00.

Krakkarnir týndu ótrúlega mikið af rusl á 45 mínútum í morgun.

Það er fátt betra en grillað brauð.

Keppnin í sundlauginni er alltaf skemmtileg.

Komið með rusl, sem týnt var í morgun.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is