Útskrift skólans fór fram í íþróttahúsinu í morgun að viðstöddu fjölmenni. Jónas Bergmann Magnússon, skólastjóri fór yfir starf vetrarins, auk þess að segja frá fjölmörgum ferðum og skemmtunum, sem nemendur tóku þátt í. Fimm starfsmenn, sem eru að láta af störfum við skólann voru kvaddir með fallegum blómvöndum og þeir tíu nemendur, sem voru að útskrifast úr 10. bekk skólans fengu líka blóm. Formaður nemendaráðs flutti líka skemmtilega ræðu svo eitthvað sé nefnt. Eftir útskriftina var boðið upp á kaffi og ísblóm. Skólastarf hefst aftur 15. ágúst í sumar þegar kennarar og aðrir starfsmenn mæta til starfa. Meðfylgjandi myndir voru teknar í útskriftinni.

Fjölmargir mættu við útskriftina og höfðu gaman af enda alltaf stór áfangi í skólum þegar skólaslit eru.

Nemendur 1. bekkjar ásamt kennara sínum.

Nemendur 2. bekkjar með kennurum sínum.

Nemendur 3. bekkjar ásamt kennurum bekkjarins.

Nemendur 4. bekkjar ásamt kennara sínum.

Hér eru nemendur 5. bekkjar ásamt kennara sínum.

Nemendur 6. bekkjar ásamt kennara sínum og stuðningsfulltrúa bekkjarins.

Nemendur 7. bekkjar ásamt kennara sínum.

Hér má sjá nemendur 8. bekkjar ásamt kennurum sínum og stuðningsfulltrúa.

Nemendur 9. bekkjar og kennarar bekkjarins.

Nemendur 10. bekkjar eru hér ásamt kennara sínum en þau voru að ljúka grunnskólanámi sínu og tekur nú við frekara nám hjá flestum í einhverjum framhaldsskóla.

Örvar, sem er formaður nemendafélagsins og var að útskrifast úr 10. bekk flutti skemmtilega ræðu við skólaslitin.

Það er alltaf erfitt að kveðja skólann sinn eftir að hafa verið í honum í mörg, mörg ár.