Markmið
Laugalandsskóli leggur áherslu á að skapa öruggt og heilbrigt námsumhverfi þar sem velferð, öryggi og farsæld nemenda eru í fyrirrúmi. Markmið áætlunarinnar er að:
Áætlunin byggir á gildum skólans um samvinnu, traust og vellíðan og á nánu samstarfi heimila, skóla og nærsamfélags.
Forvarnarstarf
Forvarnir eru samþættur þáttur í öllu skólastarfi. Áhersla er lögð á:
Reglur
Regla 2 í skólareglum Laugalandsskóla er Heilbrigði en þar segir meðal annars: …öll notkun orkudrykkja, nikótínvara, áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð (sjá reglur og meðferð agabrota á heimasíðu skólans). Undir þessa reglu fellur því að bannað er að:
Reglur skólans gilda um allt skólastarf, bæði innan skólans og í ferðum, vettvangsferðum og öðrum viðburðum á vegum skólans
Viðbrögð
Vakni grunur um að nemandi sé undir áhrifum vímuefna eða hafi slík efni undir höndum skal starfsmaður fara eftir viðbrögðum við agabrotum skólans og færa viðbrögð á það stig sem hann telur réttast í samráði við stjórnendur sjá skýringarmynd með meðferð agabrota. Viðbrögð miðast meðal annars við hvort um grun sé að ræða eða hvort um staðfestan grun sé að ræða. Þá þarf einnig að taka tillit til þess hvort þetta sé fyrsta brot eða ítrekað brot.

Hlutverk foreldra
Foreldrar eru mikilvægir samstarfsaðilar í forvörnum. Skólinn leitast við að:
Endurskoðun
Áætlunin skal kynnt starfsfólki, nemendum og foreldrum og endurskoðuð reglulega eða þegar tilefni gefst til.
Síðast endurskoðuð vor 2026