Sími 487 6541
laugholt@laugaland.is

11. september, 2026

Nemendaráð Laugalandsskóla 2026-2027

Á haustin er venjan að kosið er nýtt nemendaráð. Reglan er sú að úr hverjum bekk í unglingadeild sitja 2 aðalmenn og einn varamaður.  Sá nemandi í 10. bekk sem hlýtur flest atkvæði verður kosinn formaður. Kosningarétt hafa aftur á móti nemendur frá 5.-10. bekk. Haldinn er framboðsfundur þar sem allir frambjóðendur fá tækifæri til að koma sínum hugmyndum á framfæri áður en kjósendur ganga til kosninga í sínum stofum. 

Það var virkilega gaman á kosningadaginn þetta haustið þar sem frambjóðendur voru skemmtilegir og málefnalegir og kjósendur kusu eftir sinni sannfæringu. 

Í nemendaráði Laugalandsskóla veturinn 2026-2027 sitja eftirfarandi nemendur:

10. Bekkur: Eldey Eva Engilbertsdóttir (Formaður) og Hákon Þór Kristinsson (varaformaður) 

9. Bekkur: Tinna Lind Brynjólfsdóttir, Anna Sigríður Erlendsdóttir. 

8. Bekkur: Helgi Hrafn Sigvaldason, Viktoría Rós Pierrsdóttir.

Varamenn: Þorgeir Óli Eiríksson (10. bekk) Ragnar Dagur Jóhannsson (9. bekk) Dagur Stefnisson (8. bekk) 

Dagný Rós Stefánsdóttir er umsjónarmaður. 

Helstu hlutirnir sem nemendaráðið skipuleggur eru viðburði fyrir öll skólastig á skólatíma og utan skólans t.d. leikjakvöld, skemmtanir á skólatíma og böll. Stærstu viðburðirnir  eru sameiginlega Árshátíðin, Haustball og Listahátíð sem Hvollskóli, Helluskóli og Laugalandsskóla skiptast á að halda.

Nemendur í nemendaráði eru traustar manneskjur og er hægt að tala við þau um hluti eða vandamál sem hægt væri að bæta.

Nemendaráðið er hér til að halda utan um skólann og tala um hluti sem væri hægt að bæta. Þau í nemendaráðinu standa sig eins og hetjur og hafa gert allskonar gott fyrir skólann og nemanda skólans.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR
Sími: 487 6541
laugholt@laugaland.is