Hrekkjavakan var haldin hátíðleg í Laugalandsskóla með skemmtilegum uppbrotsdegi. Þá komu nemendur, kennarar og starfsfólk í búningum og skólinn skreyttur hræðilega!
Nemendur byrjuðu daginn með skemmtilegum leikjum eða verkefnum hjá umsjónarkennurum áður en förinni var heitið í gegnum hræðilegt draugahús sem nemendur í 9. og 10. bekk höfðu hannað. Eftir hádegi sameinuðust allir bekkir niður í íþróttasal á hrekkjavökuball á vegum nemendafélagsins. Þar fóru nemendur í alls kyns leiki, dönsuðu mikið og að lokum voru veitt verðlaun fyrir flottustu búninga dagsins.
Dagurinn var frábær í alla staði og gaman að sjá hvað margir lögðu sig fram við búningagerð.













