
Sunnudaginn 8. nóvember var dagur gegn einelti. Af því tilefni komu nemendur, kennarar og starfsfólk Laugalandsskóla saman á skólalóðinni og mynduðu stórt hjarta – tákn um samstöðu, umhyggju og mikilvægi góðra samskipta.
Einkunnarorð skólans eru „Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi“ og þau eru okkur meira en orð á blaði. Þau eru leiðarljós í daglegu starfi okkar og minna okkur á mikilvægi þess að rækta góð samskipti, sýna hvert öðru virðingu og skapa umhverfi þar sem öllum líður vel.
Við vinnum markvisst að því að efla jákvæð og uppbyggileg samskipti, jafnt meðal nemenda sem starfsfólks, því góður skólabragur verður ekki til af sjálfu sér. Hann byggist á samvinnu, trausti og sameiginlegri ábyrgð okkar allra.
Hjarta skólans er allt skólasamfélagið. Það er í okkar höndum að skapa góðan skólabrag þar sem virðing, traust og góð samskipti skipta máli. Við í Laugalandsskóla leggjum okkur fram um að öllum líði vel og að hver og einn finni að hann sé mikilvægur hluti af skólasamfélaginu.
Góð samskipti eru ekki sjálfgefin. Þau þarf að rækta og það gerum við saman, alla daga.
Þess ber að geta að Gísella okkar Hannesdóttir gaf út lag nú á dögunum sem snýst um jákvæð samskipti og kallast Kærleikslagið. Lagið þekkja flestir nemendur skólans þar sem lagið var oft sungið í samsöng með Gísellu fyrir nokkrum árum. Hægt er að hlusta á lagið í heild sinni með því að smella á myndina hér að neðan.
