Rithöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir heimsótti okkur í Laugalandsskóla á dögunum og kynnti nýjustu bók sína, Pógó og prumpið sem bjargaði heiminum. Það er óhætt að segja að titillinn einn og sér hafi vakið mikla kátínu og forvitni meðal nemenda í 2.–7. bekk sem fengu að njóta þessarar skemmtilegu bókarkynningar.
Bókin á sér áhugaverðan aðdraganda en Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) hafði samband við Bergrúnu og óskaði eftir því að hún skrifaði barnabók þar sem allar sögupersónurnar byggju við einhvers konar fötlun. Hugmyndin var þó ekki að fötlunin sjálf væri meginviðfangsefni sögunnar, heldur að skapa skemmtilega og spennandi bók fyrir öll börn þar sem fjölbreytileiki mannlífsins fengi að njóta sín á eðlilegan hátt.
Bergrún las valda kafla úr bókinni og hlustuðu nemendur af mikilli athygli. Að lestrinum loknum voru þeir ófeimnir við að spyrja spurninga og skapaðist skemmtileg umræða um bókina, persónurnar og rithöfundastarfið. Bergrún hvatti nemendur eindregið til að láta ímyndunaraflið njóta sín, skrifa eigin sögur og gefa sköpunargleðinni lausan tauminn. Það gladdi hana sérstaklega að heyra hversu margir nemendur höfðu þegar spreytt sig á því að semja sögur og búa til sínar eigin bækur.
Í Laugalandsskóla leggjum við ríka áherslu á lestur, læsi og sköpun í skólastarfinu. Heimsókn sem þessi er því kærkomin viðbót við það starf, enda fátt jafn dýrmætt og að kveikja áhuga barna á bókum og hvetja þau til að uppgötva töfra orðanna.
Við þökkum Bergrúnu Írisi kærlega fyrir skemmtilega, fróðlega og hvetjandi heimsókn!
