Dagskólanum barst um daginn höfðingleg gjöf frá aðila sem vill ekki láta nafn síns getið. Gefinn var styrkur til kaupa á leikföngum að andvirði 150 þúsund. Þetta sló allt saman í gegn hjá krökkunum sem nýta sér þetta á dagskólatíma.
Við viljum þakka viðkomandi kærlega fyrir þetta!