Foreldrafélag Laugalandsskóla var stofnað 13. september 2010 en markmið þess eru einkum að vera samstarfsvettvangur foreldra sem eiga börn í skólanum, stuðla að velferð nemenda, tryggja gott samstarf foreldra og starfsfólks skólans og styðja skólastarfið s.s. varðandi félagsmál eftir þörfum skólans (nemenda).
Hér má lesa lög félagsins
Fjáröflunardagur félagsins er sumardagurinn fyrsti. Tilhögun sumardagsins fyrsta er með þeim hætti að foreldrar og forráðamenn nemenda í 4. og 7. bekk sjá um að grilla pylsur. Foreldrar og forráðamenn 6. bekkjar sjá um hátíðardagskrá og aðstoð við hlaupa- og hjólreiðakeppni. Auk þess stendur félagið árlega fyrir bæði jólabingói og páskabingói í samvinnu við bekkjartengla hverju sinni.
Allir foreldrar og forráðamenn barna í skólanum eru sjálfkrafa meðlimir í félaginu og greiða árgjald í það skv. lögum félagsins.

Stjórn
Í stjórn foreldrafélagsins árið 2024-2025 sitja:
Jóhanna Hlöðversdóttir, formaður
Katrín Ívarsdóttir, gjaldkeri
Aðrir í stjórn eru:

Guðni Rúnar Karl Vilhjálmsson
Hrefna Huld Helgadóttir
Þórður Atli Guðnýjarson


Athugið að foreldrafélagið er með facebooksíðu sem heitir sama nafn og við hvetjum alla foreldra til að fylgjast vel með þar.

Þessi síða var síðast uppfærð 30. október 2024

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR