Heilsuvernd

Heilsuvernd skólabarna í Laugalandsskóla er á vegum Heilsugæslu Rangárþings.
Skólahjúkrunarfræðingur er Arndís Fannberg og viðverutími er á fimmtudögum kl.8:30 – 14:00 Netfang skólahjúkrunarfræðings er: arndis.fannberg@hsu.is og sími 4322700
Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við foreldra, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar.

Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, fræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu (https://throunarmidstod.is/svid-thih/heilsuvernd-skolabarna/) og Embættis landlæknis um heilsuvernd grunnskólabarna.

Heilbrigðisfræðsla

Skipulögð heilbrigðisfræðsla er veitt í öllum árgöngum og er áherslan á að hvetja til heilbrigðra lífshátta. Eftir fræðslu fá foreldrar upplýsingar í tölvupósti um fræðsluna. Þá gefst þeim kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig hægt er að nýta það í daglegu lífi.
1.bekkur – Líkaminn minn – Forvörn gegn kynferðislegu ofbeldi og Hjálmanotkun
2.bekkur – Tilfinningar
3.bekkur – Verkefnabók um 6H heilsunnar (Hamingja, Hollusta, Hreinlæti, Hreyfing,Hvíld)
4.bekkur – Kvíði og Slysavarnir
5.bekkur – Samskipti
6. bekkur – Kynþroski og Endurlífgun
7. bekkur – Bólusetningar
8. bekkur – Sjálfsmynd-Samskipti, Hugrekki og Endurlífgun
9. bekkur – Kynheilbrigði og Bólusetning
10. bekkur – Geðheilbrigði, Endurlífgun og Ábyrgð á eigin heilsu
Markmið hverrar fræðslu eftir árgöngum er hægt að sjá á Heilsuvera.is https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/throskaferlid/heilsuvernd-grunnskolabarna/umheilsuvernd-grunnskolabarna/

Skimanir
Skimað er fyrir ákveðnum heilbrigðisvandamálum og eru skimanir framkvæmdar í 1., 4., 7. og 9. bekk. Þær felast í mælingu á hæð, þyngd og sjónskerpu. Nemendur í öðrum árgöngum eru skimaðir eftir þörfum. Ef frávik reynist í skimun er ávallt haft samband við forráðamann.
Heilsueflandi viðtöl um lífsvenjur og líðan
Þegar skimanir fara fram í 1., 4., 7. og 9. bekk ræðir skólahjúkrunarfræðingur við nemendur um líðan og lífsvenjur. Markmið viðtalanna er að styrkja vitund nemenda um eigið heilbrigði og líðan. Einnig að geta gripið til úrræða ef vart verður við vanlíðan eða áhyggjur.
Bólusetningar
Bólusetningum er ætlað að verja einstaklinginn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Í 7. bekk er bólusett við mislingum, hettusótt og rauðum hundum (ein sprauta),  og HPV (Human papilloma veirum) sem geta valdið leghálskrabbameini. HPV bólusetning er gefin tvisvar með 6 mánaða millibili. Í 9. bekk er bólusett við barnaveiki, stífkrampa, kíghósta og mænusótt (ein sprauta).
Áður en kemur að bólusetningu er sendur tölvupóstur til foreldra með upplýsingum um tímasetningu. Gott er að nemendur komi með bólusetningarskírteini sín í skólann þegar bólusetning fer fram.
Hafið samband við skólahjúkrunarfræðing ef:
Nánari upplýsinga er óskað
Talið er að barn sé ekki að fullu bólusett
Óskað er eftir því að barn sé ekki bólusett
Það er á ábyrgð foreldra að láta bólusetja börn sín.

Laugalandsskóli

Samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi

SKÓLAREGLUR