Sjálfsmat er ferli sem snýst um að skólinn afli upplýsinga um starfsemi sína, leggi mat á hana og íhugi í framhaldi gengi sitt með tilliti til nemenda og starfsfólks. Matið er innbyggt inn í daglegt starf og fyrst og fremst framkvæmt af starfsmönnum enda þekkja þeir skólastarfið best. Mikilvægt er að matið sé sameiginlegt framtak allra í skólanum því þá eru meiri líkur á því að starfsfólkið upplifi og viðurkenni gildi þess.
Mat gefur leiðbeiningar um hverju þarf að breyta og hvað þarf að bæta til þess að ná þeim markmiðum sem skólinn hefur sett sér. Með sjálfsmati er unnt að greina styrkleika og veikleika skólans. Sú vitneskja nýtist til að skilgreina forgangsverkefni og skipuleggja aðgerðir til að koma á umbótum.
Með sjálfsmati er leitað svara við spurningum eins og:
Ytra mat er framkvæmt af aðilum utan skóla til dæmis fyrir Mennta og menningarmálaráðumeyti en einnig geta sveitarfélög beðið um ytra mat á starfi skólans. Það gerði Byggðasamlagið Oddi 2017 en matið sem var gert byggir á sama líkani og mat Menntamálastofnunar fyrir MMR.
Hér má nálgast skýrslu Mennta og Menningarmálaráðuneytis um ytra mat Laugalandsskóla vorönn 2017:
Heimildir: